Skip to product information
1 of 5

PROBODY

G-Spine Cervical

G-Spine Cervical

Verð 29.990 ISK
Verð Útsöluverð 29.990 ISK
Útsala Uppselt
Með vsk.

Loksins alvöru heima-meðhöndlun! G-Spine tækin hjálpar þér að vinna á verkjum svo sem höfuðverkjum, vöðvabólgu eða bara þreytu í hálsi og baki eftir langan vinnudag

Fáðu árangur strax, heima! G-Spine Cervical er nýtt og háþróað tæki sem þrýstir hálsliðum rólega í rétta stöðu ásamt því að gefa þér nudd og infrarauðan hita á meðan meðhöndlun stendur.

Stjórnaðu þinni líðan að heiman, meðferðin er slakandi, einföld, þægileg, örugg og áhrifarík.

G-Spine Cervical tækið hjálpar þér að viðhalda góðri líkamsstöðu og eðlilegri háls-kúrfu ásamt því að halda diskunum í lagi.

Rannsóknir sýna að tog er örugg og áhrifarík meðhöndlun á diskum með útbungun og brjósklosi, G-Spine tækið líkir eftir toginu ásamt því að vinna upp kúrfuna í hálsliðum.

Skoða allt

Hvernig virkar
G-Spine Cervical tækið?

G-Spine Cervical  er hannað til þess að rétta stöðu og hreyfigetu í hálsliðum.  Dýnamiskt tog og þrýstingur tækisins eykur vökvastig diskanna ásamt því að auka blóðflæði á svæðinu.

Svona virkar G-Spine Cervical

  • Dýnamískt tog á hálsliði
  • Rafmagnsmeðhöndlun
  • Hitameðhöndlun (þú stjórnar)
  • Sjálfstillanleg tækni


G-Spine Cervical  skapar dýnamískt tog og léttir þannig á þrýstingi á taugar og diska (útbungun / brjósklos).  G-Spine Cervical  eykur einnig blóðflæði í bandvef og vöðvum. 

Hálsvandamál?

Hálsvandamál geta stafað af ýmsu, með meiri notkun tölva og snjallsíma er farið að bera mikið á vandamálum sem við köllum texta-háls (text neck).  Við tölvu og síma notkun þá höllum við yfirleitt höfðinu fram og réttum úr eðlilegri kúrfu hálsins (lordosis) en við það eykst þrýstingurinn á diska / liði í hálsinum og það veldur oft höfuð og hálsverkjum. G-Spine Cervical hjálpar til við að halda eðlilegri hreyfigetu og stöðu í hálsliðum.

Viðurkennd meðhöndlun!

Tog á hálsi er áhrifarík og viðurkennd meðhöndlun á hálsvandamálum svo sem brjósklosi, vöðvabólgu eða höfuðverkjum.  Infrarauðurhiti og nudd slaka á vöðvum og bæta blóðflæði. 

G-Spine Cervical tækið sameinar þessa þætti og nú getur þú á einfaldan og öruggan hátt séð um þína meðhöndlun þegar þér hentar.  Með G-Spine Cervical getur þú bætt líðan þína svo um munar ásamt því að spara tíma í ferðalög og biðstofur.

Heima-meðhöndlun!

Loksins alvöru heima-meðhöndlun! Flest "heima-meðhöndlunar" tæki á markaðinum gefa nudd eða hita, stundum bæði. 

G-Spine Cervical fer skrefinu lengra, ásamt því að gefa nudd og  infrarauðan hita frá sér þá framkvæmir tækið einnig tog á hálsinn og þrýstir hálsliðunum í rétta stöðu. 


Ástæðan fyrir verkjum og vanlíðan í hálsi / herðum / höfði er langoftast röng staða og skert hreyfigeta hálsliða. 

Infrarauður hiti

G-Spine Cervical hefur þrjár hitastillingar, þú velur þá hitastillingu sem best hentar þér til þess að ná sem mestri vöðvaslökun.  Infrarauði hitinn veitir ekki aðeins vövðaslökun heldur eykur einnig blóðflæði til muna.

Rafmagnsþerapía

Rafmagnsmeðhöndlunin (TENS) slakar á og minkar þreytu í vöðvum, eykur blóðflæði, léttir á verkjum og bætir svefngæði svo eitthvað sé nefnt. Tækið sendir rafmagnsbylgjur inn á þekkta ​nálastungu-punkta og nær þannig enn betri árangri

Rafmagnsþerapía á aðra líkamshluta

G-Spine Cervical tækið kemur með tveimur elektróðum sem þú getur tengt við tækið og á þann hátt fengið rafmagnsþerapíu á t.d. axlir, olnboga, mjóbak eða hné svo eitthvað sé nefnt.

G-Spine Cervical í notkun

Fjarstýring

Fjarstýring G-Spine Cervical er fullkomin og gerir þér kleift að stjórna meðhöndluninni eins og þér best hentar.  Þú getur t.d. haft bara infrarauðahitann á eða bara allt á í einu og stjórnað styrkleika hverrar þerapíu eins og þér best hentar.

  • Öryggisatriði

    Þrjú helstu öryggisatriði G-Spine Cervical:   

    • Þensluvörn á loftpúða.
    • Tíma vörn - slekkur á tækinu ef það er ekki notað innan við 15 mínútur.
    • Hitavörn - Tækið slekkur sjálfkrafa á sér ef hitinn fer yfir 45-50 gráður.
  • Tækniupplýsingar 

    • Impulse Frequency: 1-1000ms
    • Pulse width: 125-500ms
    • Impulse waveform: 125-500ms
    • Temperature range: 40-50 degree
    • Power: <12W
    • Voltage: > 12V
    • Electric Current < 1A

Hér getur þú nálgast frekari upplýsingar um tækið.

Algengar spurningar

Hentar G-Spine Cervical fyrir mig?

G-Spine Cervical er ákafleg áhrifarík og örugg meðhöndlun.  Tækið hentar nánast öllum sem ekki hafa farið í meiriháttar aðgerð á hálsi.  Ef þú ert í vafa endilega sendu okkur fyrirspurn.

Hversu oft get ég notað G-Spine Cervical?

Það eru í raun lítil takmörk fyrir því hversu oft á dag þú getur notað G-Spine Cervical.  Við mælum með því að þú notir tækið einu sinni á dag.

Slæmir höfuðverkir, get ég notað G-Spine?

Algengast er að höfuðverkir eigi upptök sín í hálsinum / hálsliðum.  G-Spine Cervical viðheldur réttri stöðu og hreyfigetu í hálsinum og minnkar því líkurnar svo um munar á höfuðverkjum.

Ég lenti í aftanákeyrslu, get ég notað G-Spine Cervical

Það sem skeður oft  í whiplash (aftanákeyrsla) slysum er að liðbönd skaðast og með tíð og tíma missum við kúrfuna (lordosis) í hálsinum.  G-Spine Cervical hjálpar þér að fyrirbyggja og endurhæfa þetta vandamál.

Ef tækið hentar mér ekki, get ég skilað því?

Ábyrgð og skilaréttur á þessu tæki er í samræmi við íslensk lög :).  Við mælum með að þú notir tækið reglulega í nokkrar vikur áður en þú ákveður hvort tækið hentar þér eða ekki..

Þarf ég að byrja hægt með að nota tækið?

Þú finnur fljótt hvað hentar þér, þar sem tækið meðalannars eykur hreyfigetu hjá þér þá er ekki óeðlilegt að þú finnir fyrir eitthverjum harðsperrum fyrstu skiptin.  Við minnum á að þar sem þetta er heima- meðferð þá stjórnar þú ferðinni  :)

Hvenær ætti ég ekki að nota tækið?

  • Svæsin gigt (Reumatoid arthritis)
  • Ef þú hefur farið í aðgerð á hálsi (ert td með skrúfur í hálsi).
  • Alvarleg beinþynning
  • Krabbamein
  • Óstöðugleika í hálsliðum
  • Ólétt
  • Yngri en 12 ára.
  • Og fleira...

Ef þú ert ekki viss, endilega sendu okkur línu og við svörum þér af bestu getu.

Umsagnir

Guttormur Brynjólfsson

Naprapat / Doctor of Naprapathy

Þetta er í fyrsta skipti sem ég hef séð “heima-meðhöndlun” sem virkar, ég mæli eindregið með G-Spine fyrir ykkur sem viljið losna við vöðvabólgu og verki eða bara létta á vöðvaspennu eftir langan vinnudag.

  • G-Spine Lumbar

    Ég vinn sem ljósmóðir, ég hef alltaf þurft að fara í nudd eða einhverja meðhöndlun eftir langar vaktir.  Ég fékk G spine Lumbar tækið lánað til prufu...og ég elska það! Þegar bakið er að kvarta þá leggst ég á tækið sem sér svo um að nudda, hita og ýta mjóbakinu í rétta stöðu, tækið hjálpar mér það mikið að nú þarf ég ekki lengur að leita til sjúkraþjálfara til þess að létta á spennunni / verkjum í mjóbakinu.

  • G-spine Cervical

    Langir dagar fyrir framan tölvuna hafa skapað mér vandamál í hálsi. Spennan og verkir í hálsi hafa oft á tíðum verið það slæmir að ég hef þurft að fá meðhöndlun. G-Spine Cervical hefur verið bylting fyrir mig, þegar ég finn spennu / verki í hálsi þá leggst ég á G-spine og tækið sér um restina.  Ég hef ekki fundið þörf fyrir að fá meðhöndlun eftir að ég byrjaði að nota G-spine

  • G-Spine Tractionn

    Ég er með brjósklos í hálsi og stundum leiðni niður í hendur, mér er sagt að aðgerð sé ekki málið fyrir mig. Það var mikill léttir fyrir mig að fá G-Spine Traction, tækið togar hálsinn upp og léttir þrýsting á taugina. Ég mun halda áfram að nota G-spine Cervical þar til einkennin eru horfin.