Getur þér liðið betur?

Okkar markmið er að bjóða upp á hágæða vörur fyrir stoð- og taugakerfi sem hjálpa þér að viðhalda eða bæta þína heilsu þannig að þú getir lifað lífinu eins og best verður á kosið.  Netverslunin er samstarf milli NAPRAPAT.IS og PROBODY.IS sem við erum ákaflega spennt fyrir.   Við erum þess fullviss að saman takist okkur að finna bestu vörurnar fyrir þig og þína heilsu :)

Lausnir fyrir þig?

G-Spine Cervical

G-Spine Cervical er bylting í heima-meðhöndlun. Tækið togar og þrýstir hálsliðum rólega í rétta stöðu ásamt því að gefa þér nudd og infrarauðan hita á meðan meðhöndlun stendur.  Ef þú þjáist af verkjum í hálsi, vöðvabólgu, höfuðverkjum, stífleika eða bara þreytu eftir langan vinnudag þá er G-Spine Cervical tækið sem þig vantar!  Stjórnaðu þinni líðan að heiman, meðferðin er slakandi, einföld, þægileg, örugg og áhrifarík.

SKOÐA VÖRU

G-Knee

Náttúruleg lausn fyrir aum og stirð hné!
Átt þú erfitt með að standa upp, ganga upp og niður stiga?  Geturðu ekki lengur stundað þína uppáhalds íþrótt vegna hnjáverkja ?
Ef þú vilt einfalda og þægilega lausn á þínum hnéverkjum, þá er G-Knee varan fyrir þig.  Með G-Knee finnur þú strax fyrir minni verkjum og meiri hreyfanleika.

SKOÐA VÖRU

G-Spine Lumbar Care

G-Spine Lumbar Care er háþróuð heima-þerapía við bakverkjum.  Tækið skapar dýnamískt tog í mjóhrygginn ásamt því að gefa nudd, infrarauðan hita og rafmagnsþerapíu - Allt í einu tæki!

SKOÐA VÖRU

G-Spine Traction

Náttúruleg lausn á hálsverkjum. G-Spine Traction skapar tog á hálsinn og léttir þannig þrýsting á diskana, í tilfellum sem um er að ræða útbungun eða brjósklos finnur þú strax gríðarlegan mun.Share

SKOÐA VÖRU

G-BELT

G-Belt er bakbelti sem veitir sérlega góðan stuðning við bakið ásamt því að þrísta mjóbakskúrfunni í sína náttúrulegu stöðu.

Ein af ástæðunum fyrir því að við þróum með okkur bakverki er að við byrjum að missa hina náttúrulegu kúrfu í mjóbakinu, samhliða því minnkum við hreyfigetu, aukum vöðvaspennu...og verkirnir koma í bakið á okkur.

Stuðningur G-Belt er eins og áður sagði sérlega góður og reynist því mjög vel m.a. þeim sem eru að kljást við útbunganir eða brjósklos.

Ef þú ert að kljást við bakverki þá  finnur þú strax fyrir meira öryggi í hreyfingum og minni verkjum með G-Belt

SKOÐA VÖRU
  • G-spine Cervical

    Langir dagar fyrir framan tölvuna hafa skapað mér vandamál í hálsi. Spennan og verkir í hálsi hafa oft á tíðum verið það slæmir að ég hef þurft að fá meðhöndlun. G-Spine Cervical hefur verið bylting fyrir mig, þegar ég finn spennu / verki í hálsi þá leggst ég á G-spine og tækið sér um restina.  Ég hef ekki fundið þörf fyrir að fá meðhöndlun eftir að ég byrjaði að nota G-spine

  • G-Spine Lumbar

    Ég vinn sem ljósmóðir, ég hef alltaf þurft að fara í nudd eða einhverja meðhöndlun eftir langar vaktir.  Ég fékk G spine Lumbar tækið lánað til prufu...og ég elska það! Þegar bakið er að kvarta þá leggst ég á tækið sem sér svo um að nudda, hita og ýta mjóbakinu í rétta stöðu, tækið hjálpar mér það mikið að nú þarf ég ekki lengur að leita til sjúkraþjálfara til þess að létta á spennunni / verkjum í mjóbakinu.

  • G-Spine Traction

    Ég er með brjósklos í hálsi og stundum leiðni niður í hendur, mér er sagt að aðgerð sé ekki málið fyrir mig. Það var mikill léttir fyrir mig að fá G-Spine Traction, tækið togar hálsinn upp og léttir þrýsting á taugina. Ég mun halda áfram að nota G-spine þar til einkennin eru horfin.